Spunagreind.is er komin í loftið! Hlutverkatengt nám í gervigreind, opið öllum, og ný hlutverk bætast við í hverri viku. Skráðu þigSpunagreind.is er komin í loftið! Ný hlutverk í hverri viku. Skráðu þig
Veldu þitt hlutverk og lærðu hvernig þú getur notað gervigreind í þínu starfi. Þú æfir þig í þínu eigin gervigreindarverkfæri, hvort sem það er ChatGPT, Claude, Gemini eða Copilot, og lærir að nota það í verkefnunum sem fylla vinnudaginn.
Grunnnámskeiðin og ókeypis hlutverkin eru opin öllum, án greiðslu.
31hlutverk opin
20–40klst. hvert
100 %Á íslensku
Hlutverkin
Hvaða hlutverki gegnir þú?
Hvert hlutverk hefur sína eigin uppröðun, frá fyrstu spurningunni að verkefni sem þú klárar frá A til Ö. Hér eru nokkur dæmi. Veldu hlutverk til að sjá hvernig námsefnið er byggt upp fyrir það.
Fyrirtækjaeigandi
Hlutverk fyrir lengra komna9 námskeið71 verkefni
Fyrir eiganda lítils fyrirtækis: tilboð, kvartanir, markaðsefni, mánaðaryfirlit, sjóðstreymisspá og ráðningar. Verkfærið skrifar drögin og reiknar; þú sannreynir.
Leiðarvísir: gervigreind fyrir fyrirtækjaeigendur
Grunnatriði gervigreindar
Fyrirmæli til gervigreindar: grunnur
Gervigreind og starf fyrirtækjaeigandans
Viðskiptavinir, sala og markaðssetning með gervigreind
Þetta eru dæmi um hlutverk. Ný hlutverk bætast við í hverri viku og þú sérð þau öll þegar þú hefur skráð þig.
Leiðin
Svona er hver leið byggð
Sama uppbygging í öllum hlutverkum. Innihaldið er skrifað fyrir starfið.
01
Leiðarvísir
Stutt yfirferð yfir það sem bíður þín í hlutverkinu og hvernig námið gengur fyrir sig.
02
Grunnurinn
Grunnatriði gervigreindar og fyrirmæli. Sameiginlegur grunnur allra starfshlutverka, opinn öllum.
03
Starfið þitt
Námskeið um verkin sem þú vinnur í raun: minnisblöð, afstemmingar, kennsluáætlanir, kvartanir. Hvert verkefni kennir eitt hugtak.
04
Verkfærið þitt
Æfingar í verkfærinu sem þú notar, með nákvæmum leiðbeiningum þar sem viðmótið skiptir máli.
05
Þín röð
Lokaverkefni þar sem þú prófar allt sem þú lærðir, frá A til Ö.
06
Lokapróf og skírteini
Hvert námskeið endar á lokaprófi. Kláraðu öll námskeiðin og fáðu skírteini sem þú getur sótt (fylgir áskrift).
Kennslustundirnar
Þú lærir með því að gera
Engin kennslustund er bara lestur. Prófaðu þrjár þeirra hér, eins og þær birtast í námskeiðunum.
Fyrirmæli AGerðu fundargerð.
Fyrirmæli BÞú ert verkefnastjóri. Búðu til fundargerð úr punktunum hér að neðan. Skiptu henni í ákvarðanir og aðgerðir. Hver aðgerð fær ábyrgðaraðila og dagsetningu. Hafðu hana stutta.
Seinni fyrirmælin segja verkfærinu hver þú ert, hvaða snið þú vilt, hver ber ábyrgð og hversu langt svarið á að vera. Það er munurinn á drögum sem þú endurskrifar og drögum sem þú sendir.
Hlutverk: segirðu hver þú ert?
Snið: ákvarðanir, aðgerðir, listi eða tafla?
Ábyrgð: fær hver aðgerð ábyrgðaraðila?
Lengd: stutt, eða ákveðinn fjöldi orða?
3 tilraunir eftir í dag
Endurgjöfin er skrifuð af gervigreind og getur verið röng. Textinn er sendur til gervigreindarþjónustu til úrvinnslu, svo skrifaðu engar persónuupplýsingar. Við vistum hann ekki og tilraunir eru takmarkaðar.
Í námskeiðinu prófarðu fyrirmælin strax í þínu eigin verkfæri og berð svarið saman við dæmið.
Bætt fyrirmæliÞú ert verkefnastjóri. Búðu til fundargerð úr punktunum hér að neðan. Skiptu henni í ákvarðanir og aðgerðir. Hver aðgerð fær ábyrgðaraðila og dagsetningu. Hafðu hana stutta. Merktu sérstaklega allt sem kemur ekki fram í punktunum, í stað þess að giska.
Ein setning í viðbót gerir yfirlesturinn fljótlegri: verkfærið segir þér sjálft hvar það er óvisst, svo þú veist hvað þarf að athuga.
Taktu meðÞú ert verkefnastjóri. Búðu til fundargerð úr punktunum hér að neðan. Skiptu henni í ákvarðanir og aðgerðir. Hver aðgerð fær ábyrgðaraðila og dagsetningu. Hafðu hana stutta. Merktu sérstaklega allt sem kemur ekki fram í punktunum, í stað þess að giska.
Hver sýnikennsla endar á einhverju sem þú notar strax í vinnunni.
Viðskiptavinur sendir kvörtun. Í póstinum eru kennitala hans og reikningsnúmer. Þú vilt að gervigreind hjálpi þér að svara fljótt. Hvað gerirðu?
Traust –
Áhætta –
Tími sparaður –
Veldu leið til að sjá afleiðingarnar.
100stig í boði · áfangi 1 af 3
Hvað af þessu á aldrei að fara inn í almennt gervigreindarverkfæri?
Vísbending: hugsaðu um viðkvæmustu persónuupplýsingarnar sem til eru.
Veldu svar.
Í áskorunum helmingar vísbending eða ný tilraun stigin í áfanganum. Þú klárar samt alltaf.
Hlutverk fyrir daglegt líf, nám og tómstundir, á rólegum hraða og án greiðslu. Þau eru hluti af öllum hlutverkunum, og auk þeirra eru mörg námskeið og verkefni opin öllum, til dæmis grunnnámskeiðin um gervigreind og fyrirmæli.
Opið núna · 7 námskeið · 37 verkefni
Eldri borgari
Spjallmenni í daglegu lífi, skref fyrir skref: fyrsta spurningin, kveðjur, bréf, heilsuspurningar og ferðalög.
Áskrift eftir fjölda starfsfólks, greidd gegn reikningi.
Spurt og svarað
Algengar spurningar
Þarf ég að kunna eitthvað fyrir fram?
Nei. Hver leið byrjar á grunninum: hvað gervigreind er og hvernig þú biður hana um verk. Síðan byggist hún upp í átt að starfinu þínu.
Hvaða gervigreindarverkfæri nota ég?
Það sem þú hefur aðgang að: ChatGPT, Claude, Gemini eða Copilot. Þú velur verkfærið þitt og æfingarnar taka mið af því.
Hvað kostar þetta?
Grunnnámskeiðin og ókeypis hlutverkin eru opin öllum, án greiðslu. Önnur hlutverk eru í áskrift: Einstaklings- og Teymisáskrift eru greiddar með korti, en fyrirtæki og stofnanir fá reikning. Verð og það sem hver áskrift felur í sér sjást á verðskránni. Skoða verðskrána
Er efnið í alvöru á íslensku?
Já. Allt efnið er skrifað á íslensku frá grunni, með íslenskum dæmum og aðstæðum. Það er ekki þýtt.
Hvernig fæ ég skírteini?
Hvert námskeið endar á lokaprófi. Þegar þú hefur lokið leiðinni færðu skírteini með slóð sem aðrir geta notað til að staðfesta það.
Getur fyrirtækið mitt keypt aðgang fyrir hópinn?
Já. Fyrirtæki og stofnanir fá stjórnendagátt og áskrift eftir fjölda starfsfólks, greidda gegn reikningi. Hafðu samband og við setjum það upp.