Skilmálar
Þjónustuskilmálar fyrir Spunagreind AI námsvettvang
TLDR - Stuttur samantekt
• Þjónustan: Spunagreind veitir aðgang að þjónustunni sem kennir notendum að nota gervigreind (AI) í daglegu lífi og starfi með námskeiðum og verkefnum
• Greiðslur: Mánaðarleg eða árleg áskrift í íslenskum krónum (ISK), hægt að segja upp hvenær sem er
• Gögn þín: Við verndum persónuupplýsingar þínar og geymum aðeins nauðsynleg gögn
• Ábyrgð: Þú berð ábyrgð á því efni sem þú býrð til
• Uppsögn: Hægt að segja upp áskrift hvenær sem er með 30 daga fyrirvara
Vissir þú að þú getur látið AI lesa langa samninga eins og þessa?
Í stað þess að lesa alla þessa skilmála geturðu notað AI til að fá samantekt um hvernig þeir gætu haft áhrif á þig.
Prófaðu þetta!
Afritaðu þessa skilmála og spurðu AI: "Geturðu gefið mér samantekt á þessum skilmálum og útskýrt hvað þeir þýða fyrir mig sem notanda?"
Þjónustuskilmálar Spunagreind.is
Með því að nota þjónustu okkar samþykkir þú að vera bundin(n) af þessum þjónustuskilmálum, gagnavinnslusamningi, og viðbótarákvæðum og -skilmálum sem þér kunna að vera veittir á vefsvæði okkar áður en þú notar eða pantar þjónustu. Ef ekki er hægt að leysa einhver ákvæði í þessum skjölum með öðrum hætti en þannig að upp komi ágreiningur á milli eða meðal þeirra, skal eftirfarandi forgangsröð gilda varðandi túlkun og beitingu ákvæða þessara þjónustuskilmála: (1) í fyrsta lagi, sérskilmálar og/eða viðbótarskilmálar; (2) í öðru lagi, gagnavinnslusamningur; (3) í þriðja lagi, þessir þjónustuskilmálar.
Ef þú samþykkir þessa skilmála fyrir hönd annars aðila, eins og vinnuveitanda þíns eða fyrirtækisins sem þú vinnur fyrir, staðfestir þú að þú hafir lagaheimild til að binda þann aðila. Ef þú samþykkir ekki þessa þjónustuskilmála, gagnavinnslusamning, ásamt sérskilmálum er þér óheimilt að nota þjónustuna.
Skilgreiningar
Þjónustuveitandi: Peritus slf., Mosfellsbær, Ísland.
Viðskiptavinur/Notandi: Þú - einka- eða lögaðili sem notar þjónustuna.
Notandagögn: Skrár og önnur stafræn gögn og upplýsingar sem notandinn hleður upp í þjónustuna eða býr til með henni.
Persónuupplýsingar: Upplýsingar sem tengjast auðkenndum eða auðkennanlegum einstaklingi.
Þjónustan: Spunagreind.is kennsluþjónusta, þar á meðal vefsvæðið, kerfið, hugbúnaður og allt efni, þjónusta og/eða vörur sem eru í boði.
AI verkfæri: Gervigreindarþjónusta þriðja aðila (t.d. ChatGPT, Claude, Gemini) sem námsefnið kennir notkun á. Verkfærin eru ekki hluti af þjónustunni og notandi semur sjálfur við viðkomandi þjónustuveitanda.
Námsgögn: Námskeið, verkefni, leiðbeiningar og annað fræðsluefni á vettvangi.
Skilmálar: Nýjasta útgáfan af þessum skilmálum og skilyrðum varðandi notkun á þjónustunni.
Þjónustan
Samningur þessi veitir notanda aðgang að Spunagreind.is sem inniheldur:
- Aðgang að námskeiðum og fræðsluefni um gervigreind og tengd efni
- Gagnvirk verkefni og æfingar
- Persónulega framfararakningu og námsáætlanir
- Leiðbeiningar og æfingar í notkun AI verkfæra þriðja aðila
Í sumum kennslustundum getur notandi beðið um endurgjöf frá gervigreind (Jev) á eigin texta. Endurgjöfin er valfrjáls hluti þjónustunnar og er aðeins veitt þegar notandi biður um hana. Hún er ráðgjöf, ekki einkunn, og hefur engin áhrif á framvindu eða stig. Textinn er sendur til TypeSafe sem vinnur hann fyrir okkar hönd. Nánar er fjallað um vinnsluna í persónuverndarstefnunni.
Í aðgangi þjónustukaupa felst notkunarréttur á samningstíma, en ekki eignarréttur. Notanda er óheimilt að framselja hugbúnaðarlausnina eða notkun lausnarinnar með nokkrum hætti, breyta eða fela öðrum að breyta hugbúnaðinum, brjóta hann niður (reverse engineering) nema Peritus slf. veiti skriflegt samþykki fyrir slíku.
Við gerum okkar besta til að gera þjónustuna notendum aðgengilega allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, fyrir utan skipulagða niðritíma með fyrir fram tilkynningu til notenda.
Skyldur notanda
Notandi skal veita Peritus slf. nauðsynlegar og æskilegar upplýsingar til þess að Peritus slf. geti sinnt skyldum sínum samkvæmt samningi þessum. Notandi ber ábyrgð á því að tryggja að hann hafi þann vél- og hugbúnað sem nauðsynlegur er svo hægt sé að veita þjónustuna.
Notandi skuldbindur sig til að:
- Nota þjónustuna á ábyrgan og löglegan hátt
- Ekki deila aðgangsgögnum sínum með öðrum
- Virða hugverkaréttindi og höfundarrétt
- Ekki nota AI aðstoðina til að búa til skaðlegt eða ólöglegt efni
- Tilkynna um öryggisveikleika eða misnotkun
- Fylgja leiðbeiningum um örugga notkun AI verkfæra
Það er á ábyrgð notanda að hugbúnaður hans sé laus við vírusa, trójuhesta eða annars konar hugbúnað eða kóða sem hafa skaðlega eiginleika, og að hugbúnaður hans geti ekki, á einn eða annan hátt, skaðað eða haft slæm áhrif á hugbúnaðarlausn Peritus eða þjónustuna.
Verð og greiðslur
Verð, eiginleikar og takmörk þjónustunnar velta á þeirri áskriftarleið sem notandi velur. Gildandi verðskrá og samanburður á áskriftarleiðum er birtur á verðskrársíðunni og er hluti af þessum skilmálum.
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK). Verð fyrir einstaklinga og teymi eru birt með virðisaukaskatti. Verð fyrir fyrirtæki eru birt án virðisaukaskatts, sem bætist við á reikningi. Áskriftir fyrir einstaklinga og teymi eru greiddar með greiðslukorti; áskriftir fyrir fyrirtæki, stórfyrirtæki og sérsniðnar lausnir eru greiddar með reikningi.
Greiðslur eru innheimtar fyrirfram fyrir hvert greiðslutímabil. Notandi getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er, og tekur uppsögnin gildi við lok núverandi greiðslutímabils.
Við áskiljum okkur rétt til að breyta verðlagningu með 30 daga fyrirvara. Núverandi notendur fá að halda núverandi verði í að minnsta kosti 6 mánuði eftir verðbreytinguna.
Öryggi og persónuvernd
Peritus slf. leggur áherslu á að tryggja öryggi gagna út frá sjónarmiðum persónuverndar. Við fylgjum íslenskum og evrópskum persónuverndarlögum (GDPR) og geymum einungis þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustuna.
Öryggisráðstafanir okkar innihalda:
- Dulkóðun gagna við flutning og geymslu
- Reglulegar öryggisúttektir og uppfærslur
- Takmarkaðan aðgang að persónuupplýsingum
- Örugg geymsla á evrópskum netþjónum
- Regluleg öryggisafrit
Notendur hafa rétt til að fá aðgang að sínum persónuupplýsingum, leiðrétta þær, eyða þeim eða flytja þær til annars þjónustuveitanda í samræmi við gildandi lög.
AI efni og ábyrgð
Notandi ber fulla ábyrgð á efni sem hann býr til með AI verkfærum þriðja aðila (ChatGPT, Claude, o.s.frv). Peritus slf. kennir notkun þeirra en rekur þau ekki og ber ekki ábyrgð á því efni sem notendur búa til.
Notandi skuldbindur sig til að:
- Fara yfir og staðfesta nákvæmni AI-búins efnis
- Ekki nota AI til að búa til villandi eða skaðlegt efni
- Virða höfundarrétt og hugverkaréttindi annarra
- Tilgreina þegar efni er búið til með AI aðstoð þar sem það á við
- Nota AI verkfæri í samræmi við siðferðilegar leiðbeiningar
AI verkfæri þriðja aðila lúta eigin skilmálum og öryggisráðstöfunum. Við getum hvorki tryggt að svör þeirra séu nákvæm né viðeigandi, og notendur eru hvattir til að nota gagnrýna hugsun við mat á AI-búnu efni.
Aðgangur notanda
Notandi ber ábyrgð á öllum aðgerðum sem eiga sér stað á notandaaðgangi sínum. Notandi skal halda aðgangsgögnum sínum öruggum og tilkynna tafarlaust ef grunur leikur á að aðgangi hafi verið misnotaður.
Við áskiljum okkur rétt til að takmarka eða loka aðgangi notenda sem brjóta gegn þessum skilmálum eða nota þjónustuna á óviðeigandi hátt.
Þegar aðgangur í gegnum teymi lýkur
Ef þú færð aðgang að þjónustunni í gegnum teymi eða fyrirtæki og þeim aðgangi lýkur færist þú á ókeypis áskrift. Aðganginum lýkur þegar þú yfirgefur teymið, þér er vikið úr því eða áskrift teymisins rennur út. Ef þú átt áskrift sjálf(ur) heldur hún gildi sínu.
Þú ert áfram notandi Spunagreindar, með reikninginn þinn, framvinduna og skírteinin, þar til þú eyðir aðganginum sjálf(ur) undir „Aðgangur“ í notendastillingum eða hefur samband við Peritus.
Takmörkun ábyrgðar
Við berum ekki ábyrgð á bilunum í þjónustunni eða hugbúnaðargöllum og tökum ekki á okkur neinn kostnað vegna slíkra atvika, beins eða óbeins taps eða glataðs hagnaðar og greiðum ekki bætur vegna mögulegra óþæginda sem notandinn gæti orðið fyrir.
Þjónustan er veitt "eins og hún er" og við gefum engar tryggingar um:
- Stöðuga aðgengi að þjónustunni
- Nákvæmni AI-búins efnis
- Að þjónustan uppfylli sérstakar þarfir notanda
- Að þjónustan sé laus við villur
Hámarksábyrgð okkar gagnvart notanda takmarkast við þá upphæð sem notandi hefur greitt fyrir þjónustuna á síðustu 12 mánuðum.
Hugverkaréttindi
Vörumerki okkar og vöruheiti, mega aðeins vera notuð af þriðja aðila ef hann hefur fengið skriflegt samþykki frá okkur áður en þeir nota það í útgefnu efni eða á vefsvæðum.
Allt efni á vettvangi, þar á meðal texti, myndir, hönnun og hugbúnaður, er í eigu Peritus slf. eða notað með leyfi. Notendum er óheimilt að afrita, dreifa eða nota slíkt efni án leyfis.
Efni sem notendur búa til með AI aðstoð á vettvangi tilheyrir notendum.
Breytingar á skilmálum
Við áskiljum okkur rétt, að eigin ákvörðun, til að breyta þessum þjónustuskilmálum hvenær sem er. Nema annað sé sérstaklega tekið fram verða slíkar breytingar tilkynntar í gegnum þjónustuna með 30 daga fyrirvara.
Kannaðu reglulega hvort breytingar hafi verið gerðar á skilmálunum. Áframhaldandi notkun þín á þjónustu okkar eftir slíkar breytingar jafngildir bindandi samþykki á slíkum breytingum.
Óviðráðanleg atvik (Force Majeure)
Við berum ekki ábyrgð á því ef þær skyldur sem hér eru nefndar eru ekki uppfylltar eða aðeins að hluta til ef ástæður þess eru sérstakar aðstæður sem við gátum ekki séð fyrir, komið í veg fyrir eða fjarlægt með nokkrum hætti (Force Majeure aðstæður). Við skulum tilkynna notendum um Force Majeure aðstæðurnar innan 5 (fimm) almanaksdaga eftir að þær koma upp og sýna um leið fram á að við höfum gripið til allra skynsamlegra úrræða og ráðstafana til að draga úr kostnaði eða neikvæðum afleiðingum.
Gildandi lög
Þessir þjónustuskilmálar skulu gerðir og túlkaðir samkvæmt íslenskum lögum. Komi upp ágreiningur eða deilur milli notandans og þjónustuveitandans varðandi þessa þjónustuskilmála skulu aðilarnir reyna að ná sáttum. Ef sættir nást ekki skulu allar óleystar deilur, ágreiningur og kröfur sem upp koma vegna þessara þjónustuskilmála eða tengjast þeim, brotum á þeim, riftun eða gildi, leystar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Sérstakir skilmálar
Notandinn og þjónustuveitandinn geta samið um sérstaka skilmála sem víkja frá þessum skilmálum. Allir slíkir samningar verða að vera undirritaðir af til þess bærum fulltrúum beggja aðila, og skulu ganga framar þessum skilmálum.
Uppsögn
Þú getur hætt að nota þjónustuna hvenær sem er með því að segja upp áskrift þinni í notendastillingum. Uppsögnin tekur gildi við lok núverandi greiðslutímabils.
Við áskildum okkur rétt til að hætta að veita þjónustuna eða færa veitingu þjónustunnar í hendur einhvers þriðja aðila með því að tilkynna notendum um það með minnst 6 mánaða fyrirvara. Í slíku tilfelli fá notendur sem hafa keypt þjónustu sem nær lengra en fyrirvarinn endurgreiðslu á þeim mánuðum sem þjónustan var ekki veitt.
Við áskildum okkur rétt til að hætta að veita þjónustuna, fyrirvaralaust, ef notandi brýtur gegn þessum þjónustuskilmálum eða notar þjónustuna á óviðeigandi hátt.
Hafðu samband
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt gera athugasemdir við þessa þjónustuskilmála geturðu haft samband við þjónustuteymi okkar í gegnum netfangið[email protected].
Þessir skilmálar voru síðast uppfærðir: 30. september 2026