Stefna og reglur ·
Þingmaður birtist í auglýsingu sem gervigreind bjó til úr fjölskyldumynd
Erlent fyrirtæki breytti fjölskyldumynd Sigurðar Helga Pálmasonar alþingismanns með gervigreind og notaði hana í greidda auglýsingu á Facebook. Málið snýr að rétti fólks yfir eigin ímynd og ábyrgð samfélagsmiðla.
Í hnotskurn
- Fjölskyldumynd þingmanns og föður hans var breytt með gervigreind og notuð í greidda auglýsingu á Facebook.
- Málið vekur spurningar um ábyrgð samfélagsmiðla og hvort íslensk lög verji rétt fólks yfir eigin ímynd.
- Myndir af starfsfólki á vefjum vinnustaða má auðveldlega nota í öðru samhengi og réttarstaðan er enn til umræðu.