Fyrirmæli án dæma

e. zero-shot prompting

Einnig kallað: zero-shot, zero-shot prompting

Fyrirmæli sem lýsa verkinu án þess að sýna dæmi um rétt svar. Líkanið byggir eingöngu á lýsingunni.

Fyrirmæli án dæma eru fyrirmæli þar sem verkinu er lýst en engin dæmi gefin um hvernig svarið á að líta út. Stór mállíkön ráða við mörg verk á þennan hátt, t.d. að þýða, draga saman eða flokka texta.

Þegar svarið þarf að fylgja ákveðnu sniði, tóni eða flokkun sem líkanið þekkir ekki skila dæmastýrð fyrirmæli oft betri árangri. Gott vinnulag er að byrja án dæma og bæta dæmum við ef svörin eru ekki nógu nákvæm.

Dæmi úr starfi

Rannsakandi skrifar: „Dragðu saman meginniðurstöður þessarar greinar í fimm punktum“ án þess að sýna dæmi um samantekt. Svarið dugar sem fyrsta yfirferð.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök