Skipanalína er textaviðmót við stýrikerfi eða forrit: notandinn skrifar skipun, ýtir á Enter og fær niðurstöðuna sem texta. Forritarar nota hana meðal annars til að keyra próf, setja upp pakka og vinna með Git.
Mörg verkfæri fyrir erindrekaforritun keyra í skipanalínunni, t.d. Claude Code, Codex eða Gemini CLI. Þar getur erindreki keyrt skipanir sjálfur, og því skiptir máli hvaða skipanir hann má keyra án samþykkis.