Vafraviðbót er lítið forrit sem sett er upp í vafra eins og Chrome, Edge eða Firefox og bætir við hann virkni. Sum gervigreindarverkfæri eru boðin sem vafraviðbót, t.d. til að draga saman vefsíður, aðstoða við skrif eða leyfa erindreka að stýra vafranum.
Viðbót getur oft lesið og breytt efni á öllum síðum sem eru opnaðar, þar á meðal í tölvupósti og innri kerfum. Áður en viðbót er sett upp á vinnutölvu þarf að skoða hvaða heimildir hún biður um, hver gefur hana út og hvort vinnustaðurinn hefur samþykkt hana.