Árásarflötur

e. attack surface

Einnig kallað: attack surface

Allar leiðir sem árásaraðili gæti notað til að komast inn í kerfi eða ná í gögn.

Árásarflötur kerfis er allir þeir staðir þar sem hægt er að reyna að komast inn eða misnota það: forritaskil og endapunktar, innskráningarsíður, pakkar, tengingar við önnur kerfi, starfsfólk og aðgangsheimildir. Því fleiri leiðir, því stærri flötur.

Að minnka árásarflötinn er grunnregla í öryggismálum: loka því sem er ekki notað, veita minnstu réttindi og fjarlægja gamla aðganga. Erindreki með aðgang að tölvupósti, skrám og vefnum stækkar árásarflötinn, t.d. vegna hættu á fyrirmælainnskoti.

Dæmi úr starfi

Kerfisstjóri sveitarfélags fer yfir árásarflötinn fyrir úttekt og finnur gamlan prófunarþjón sem er opinn á netinu og enginn notar lengur. Honum er lokað sama dag.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök