Hlutanet

e. Internet of Things

Einnig kallað: Internet of Things, IoT

Tæki með skynjurum og nettengingu sem senda gögn og hægt er að stýra, t.d. mælar, hitastillar og myndavélar.

Hlutanet er net hversdagslegra tækja sem eru tengd internetinu og senda eða taka við gögnum: snjallmælar, hitastillar, myndavélar, skynjarar í vélum og lækningatæki. Gögnin eru oft send í skýjaþjónustu þar sem þau eru vöktuð og greind.

Gervigreind nýtist til að greina gögn frá slíkum tækjum, t.d. til að spá fyrir um bilanir. Tækin eru jafnframt algeng leið inn í tölvukerfi, því þau eru oft með sjálfgefin lykilorð og fá sjaldan uppfærslur.

Dæmi úr starfi

Rekstrarstjóri fiskvinnslu fær viðvörun frá hitaskynjurum í frystiklefa um að hitinn hækki hægt. Hún kallar til kælitæknimann áður en varan skemmist.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök