Skýjavistun er geymsla skráa og gagna í gagnaverum þjónustuaðila, t.d. OneDrive, Google Drive eða Amazon S3, sem nálgast má hvaðan sem er um netið. Notandinn greiðir fyrir pláss og þjónustu en þarf ekki að reka eigin vélbúnað.
Þegar persónuupplýsingar eru geymdar í skýinu skiptir máli hver þjónustuaðilinn er og í hvaða landi gögnin eru vistuð. Aðgangsstýring og dulkóðun ráða miklu um öryggið, og algeng orsök gagnaleka er geymslusvæði sem óvart var opnað öllum.