Auðkenning er ferlið þar sem kerfi gengur úr skugga um að notandi, tæki eða annað kerfi sé sá sem hann segist vera. Algengar leiðir eru lykilorð, rafræn skilríki, kóði í appi og aðgangslyklar í samskiptum milli kerfa.
Auðkenning svarar spurningunni „hver ert þú?“, en aðgangsstýring svarar „hvað mátt þú gera?“. Fjölþátta auðkenning, þar sem krafist er fleiri en einnar sönnunar, dregur mikið úr hættunni á að stolið lykilorð dugi til innbrots.