Efnisvottorð, á ensku content credentials, eru lýsigögn sem fylgja mynd, myndskeiði eða hljóðskrá og skrá uppruna hennar og breytingasögu: hvaða tæki eða forrit bjó hana til, hvort gervigreind var notuð og hvaða breytingar voru gerðar. Þau byggja á opnum staðli sem kallast C2PA og eru undirrituð stafrænt svo hægt sé að sjá ef átt hefur verið við þau.
Efnisvottorð sanna ekki að efni sé satt. Þau sýna aðeins það sem var skráð. Ef þau vantar segir það heldur ekki að efnið sé falsað, því mörg forrit og miðlar fjarlægja lýsigögn.