Vatnsmerki er merki sem fellt er inn í efni til að gefa uppruna þess til kynna. Í gervigreind er oftast átt við ósýnilegt merki sem framleiðandi líkans setur í myndir, hljóð, myndskeið eða texta svo hægt sé að greina síðar að efnið var búið til með kerfi hans. Dæmi er SynthID frá Google.
Vatnsmerki hafa takmarkanir. Hvert kerfi greinir aðeins eigin merki, svo að þótt ekkert merki finnist segir það ekkert um önnur kerfi. Merki geta líka skemmst við klippingu, þjöppun eða endurvinnslu efnisins.