Einsteypa

e. monolith

Einnig kallað: monolith, monolithic

Hugbúnaður sem er byggður og gefinn út sem ein heild, öfugt við örþjónustur.

Einsteypa er kerfi þar sem allir hlutar, t.d. notendaviðmót, viðskiptareglur og gagnaaðgangur, eru í einu kóðasafni og gefnir út saman sem eitt forrit. Það er einfalt að þróa, prófa og reka, og flest kerfi byrja þannig.

Þegar kerfið og teymið stækka getur einsteypa orðið þung: lítil breyting kallar á útgáfu alls kerfisins og ekki er hægt að auka afkastagetu einstakra hluta sérstaklega. Þá er stundum skipt yfir í örþjónustur, en það eykur flækjustig og er ekki sjálfgefið betra.

Dæmi úr starfi

Tæknistjóri ferðaskrifstofu ákveður að halda bókunarkerfinu sem einsteypu, því þrír forritarar sinna því og skipting í örþjónustur myndi kosta meira en hún sparar.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök