Útgáfuferli

e. deployment pipeline

Einnig kallað: deployment pipeline, CI/CD

Sjálfvirk röð skrefa sem tekur breytingu á kóða, prófar hana og kemur henni í raunumhverfi.

Útgáfuferli er sjálfvirk keðja skrefa sem keyrir í hvert sinn sem breyting er lögð fram eða sameinuð: kóðinn er byggður, próf og önnur gæðahlið keyrð, og ef allt stenst er nýja útgáfan sett í raunumhverfi. Á ensku er talað um CI/CD (continuous integration / continuous deployment).

Útgáfuferli tryggir að sömu athuganir séu gerðar á öllum breytingum, hvort sem manneskja eða erindreki skrifaði þær. Það kemur þó ekki í stað kóðarýni, því prófin finna aðeins það sem þeim var ætlað að athuga.

Dæmi úr starfi

Teymisstjóri bætir öryggisskönnun við útgáfuferlið, svo engin PR-beiðni sé sameinuð ef hún inniheldur leyndarmál eða pakka með þekktan öryggisveikleika.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök