Færnipakki, á ensku agent skill, er mappa með leiðbeiningum og stundum skriftum, sniðmátum eða dæmum sem kenna gervigreindarverkfæri ákveðið verklag. Í pakkanum er stutt lýsing á því hvenær hann á við. Verkfærið les aðeins lýsinguna í byrjun og sækir restina af pakkanum þegar beiðni passar við hana.
Færnipakkar gera kleift að nota sama verklag aftur og aftur án þess að endurtaka það í fyrirmælum. Þar sem þeir geta innihaldið kóða sem verkfærið keyrir á aðeins að nota pakka frá traustum aðilum og prófa nýjan pakka áður en honum er treyst.