Gagnavernd fyrirtækja, á ensku enterprise data protection, er heiti sem sumir veitendur nota um verndarráðstafanir sem gilda þegar gervigreindarþjónusta er notuð með vinnuaðgangi í stað persónulegs aðgangs. Dæmi um slíkt er að fyrirspurnir og svör séu ekki notuð til að þjálfa líkön og að þau fylgi gagnaöryggis- og aðgangsstýringu vinnustaðarins. Microsoft Copilot er eitt dæmi.
Efni þessarar verndar er mismunandi milli veitenda og áskriftarleiða. Hún kemur ekki í staðinn fyrir vinnslusamning né reglur vinnustaðarins um hvaða upplýsingar má setja inn.