Vinnuaðgangur

e. work account

Einnig kallað: work account, vinnuaðgang, vinnuaðgangi, vinnuaðganginn, vinnuaðganginum, vinnuaðgangurinn

Aðgangur að gervigreindarverkfæri sem vinnustaðurinn hefur samið um og stýrir, öfugt við eigin aðgang starfsmanns.

Vinnuaðgangur er aðgangur að gervigreindarverkfæri, t.d. ChatGPT, Copilot eða Gemini, sem vinnustaðurinn hefur stofnað og stýrir á grundvelli samnings við veitandann. Í slíkum samningum er yfirleitt kveðið á um hvar gögn eru vistuð, hve lengi þau eru geymd og að þau séu ekki notuð til að þjálfa líkön veitandans. Vinnustaðurinn ræður líka stillingum, t.d. hvaða tengingar eru leyfðar.

Eigin aðgangur starfsmanns, jafnvel greiddur, fellur ekki undir þá skilmála. Vinnugögn, sérstaklega persónuupplýsingar og trúnaðarupplýsingar, eiga því heima á vinnuaðgangi en ekki á eigin aðgangi.

Dæmi úr starfi

Kennari vill fá aðstoð gervigreindar við að orða umsagnir um verkefni nemenda. Hún notar vinnuaðgang skólans en ekki eigin aðgang, því aðeins vinnuaðgangurinn fellur undir samning sveitarfélagsins um meðferð gagna.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök