Persónuupplýsingar eru allar upplýsingar sem varða persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling. Þær geta verið beinar, svo sem nafn, kennitala, netfang og mynd, eða óbeinar, svo sem staðsetning, tækjaauðkenni eða samsetning upplýsinga sem saman bera kennsl á einn mann. Sumar eru viðkvæmar, til dæmis heilsufarsupplýsingar, trúarskoðanir og kynþáttur, og njóta sérstakrar verndar.
Þegar persónuupplýsingar eru settar í gervigreindarverkfæri er verið að vinna með þær í skilningi persónuverndarlaga. Þá þarf lagastoð, og að vita hvert gögnin fara og hvort þau eru geymd eða notuð til þjálfunar.