Öryggisbrestur, í persónuverndarlögum nefndur öryggisbrestur við meðferð persónuupplýsinga, er brot á öryggi sem leiðir til þess að persónuupplýsingum er eytt, þær glatast, þeim er breytt eða þær fara til óviðkomandi, af slysni eða af ásetningi. Dæmi: tölvupóstur með viðhengi fer á rangt netfang, eða gögn eru birt í opnu spjallmenni.
Ábyrgðaraðili þarf að tilkynna Persónuvernd um brestinn án ótilhlýðilegrar tafar og eigi síðar en 72 klukkustundum eftir að hann varð var við hann, nema ólíklegt sé að bresturinn hafi áhættu í för með sér. Ef áhættan er mikil þarf einnig að tilkynna þeim sem verða fyrir henni.