Ábyrgðaraðili er einstaklingur, fyrirtæki, stofnun eða annar aðili sem ákveður tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga. Hann ber ábyrgð á að vinnslan fari að lögum, getur þurft að sýna fram á það og svarar til dæmis fyrirspurnum einstaklinga um réttindi sín.
Þegar fyrirtæki kaupir gervigreindarþjónustu og setur þar inn upplýsingar um viðskiptavini sína er fyrirtækið yfirleitt ábyrgðaraðili og veitandinn vinnsluaðili. Því þarf vinnslusamning.