Mat á áhrifum á persónuvernd er greining sem ábyrgðaraðila ber að gera áður en hafin er vinnsla persónuupplýsinga sem líklegt er að hafi í för með sér mikla áhættu fyrir réttindi og frelsi einstaklinga, t.d. við notkun nýrrar tækni, kerfisbundið mat á fólki eða umfangsmikla vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga. Persónuvernd birtir lista yfir vinnslu sem krefst slíks mats.
Matið lýsir vinnslunni og tilgangi hennar, metur hvort hún sé nauðsynleg og í hófi, greinir áhættuna og tilgreinir ráðstafanir til að draga úr henni. Ef mikil áhætta stendur eftir þarf að leita fyrirfram samráðs við Persónuvernd.