Ábyrgðarskylda er ein af meginreglum persónuverndarlaga: ábyrgðaraðili ber ábyrgð á að vinnsla persónuupplýsinga fylgi reglunum og þarf að geta sýnt fram á það. Ekki nægir að fara eftir reglunum, það þarf líka að vera skjalfest.
Í framkvæmd felst þetta m.a. í vinnsluskrá, vinnslusamningum, mati á áhrifum á persónuvernd þar sem það á við, skráðum ákvörðunum og fræðslu starfsfólks. Þegar gervigreind er tekin í notkun felst það í því að skrá hvaða verkfæri eru notuð, til hvers og á hvaða grundvelli.