Endurpersónugreining

e. re-identification

Einnig kallað: re-identification

Þegar gögn sem áttu að vera nafnlaus eru rakin aftur til einstaklings, oft með því að tengja þau öðrum gögnum.

Endurpersónugreining er þegar einstaklingur verður aftur þekkjanlegur í gögnum sem búið var að fjarlægja nöfn eða önnur bein persónukenni úr. Það gerist oft með því að tengja saman upplýsingar, til dæmis aldur, póstnúmer og starfsheiti, eða með því að bera gögnin saman við aðrar heimildir.

Í litlu samfélagi eins og á Íslandi er hættan meiri en víða annars staðar, því fáar upplýsingar duga oft til að þekkja fólk. Mállíkön geta líka dregið ályktanir út frá samhengi. Því þarf að meta hvort einhver gæti þekkst áður en gögn eru talin nafnlaus.

Dæmi úr starfi

Kennari tekur nöfn nemenda úr umsögnum áður en hann biður um samantekt, en sér að „eini nemandinn í bekknum sem æfir júdó“ þekkist samt strax.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök