Kynjahlutdrægni er hlutdrægni þar sem niðurstöður gervigreindar eru kerfisbundið ólíkar eftir kyni. Hún getur birst í mati, til dæmis þegar kerfi raðar umsækjendum af ólíku kyni á ólíkan hátt, og í texta og myndum, til dæmis þegar læknar eru alltaf sýndir sem karlar og hjúkrunarfræðingar sem konur.
Í íslensku birtist hún líka í málfræðinni, þegar mállíkan velur karlkyn eða kvenkyn um fólk eftir staðalmyndum um starfið. Hana má greina með því að bera saman svör þar sem aðeins kyninu er breytt.