Staðalmyndahlutdrægni er hlutdrægni þar sem gervigreind endurtekur eða ýkir staðalmyndir um hópa, til dæmis eftir kyni, uppruna, aldri eða fötlun. Hún kemur fram í texta, til dæmis í dæmisögum þar sem sömu hópar eru alltaf í sömu hlutverkum, og í myndum þar sem fólk í tilteknum störfum lítur alltaf eins út.
Hún stafar af því að slík tengsl eru algeng í þjálfunargögnunum. Til að draga úr henni má tilgreina fjölbreytni í fyrirmælum og fara yfir efni áður en það er notað.