Leiðbeiningar verkefnasvæðis

e. project instructions

Einnig kallað: project instructions, leiðbeiningar verkefnisins, leiðbeiningar svæðisins

Föst fyrirmæli sem gilda í öllum samtölum innan eins verkefnasvæðis, svo þú þurfir ekki að endurtaka bakgrunn og kröfur.

Leiðbeiningar verkefnasvæðis eru texti sem er vistaður á verkefnasvæði og fylgir hverju samtali þar. Þær geta lýst verkefninu, tilgreint tón og snið, nefnt hugtök eða tekið fram hvað ekki má gera. Líkanið les þær í upphafi hvers samtals.

Þær eru sambærilegar við sérsniðin fyrirmæli, en gilda aðeins innan svæðisins. Ef fleiri hafa aðgang að svæðinu sjá þeir leiðbeiningarnar líka, svo þær ættu ekki að innihalda trúnaðarupplýsingar.

Dæmi úr starfi

Teymi skrifar leiðbeiningar um að svör skuli vera á íslensku, í þriðju persónu, og vísa í kafla skjalanna sem eru á svæðinu.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök