Metafyrirmæli eru fyrirmæli þar sem gervigreind er beðin að skrifa, gagnrýna eða bæta önnur fyrirmæli. Í stað þess að skrifa fyrirmælin frá grunni lýsir notandinn verkinu og lætur verkfærið leggja til uppbyggingu, snið og spurningar sem þarf að svara.
Aðferðin er gagnleg fyrir fyrirmæli sem nota á aftur og aftur, t.d. sniðmát eða kerfisfyrirmæli. Verkfærið leggur til formið, en efnið, staðreyndirnar og dómgreindin koma frá þeim sem þekkir verkið, og prófa þarf fyrirmælin á raunverulegum dæmum.