Rauðliðaprófun er prófun þar sem rauðlið reynir markvisst að fá gervigreindarkerfi til að gera það sem það á ekki að gera: gefa skaðleg eða röng svör, leka gögnum, fara framhjá verndarreglum eða framkvæma óheimilar aðgerðir. Prófað er bæði handvirkt og með sjálfvirkum árásum, oft með flóttafyrirmælum og fyrirmælainnskoti.
Framleiðendur stórra líkana gera rauðliðaprófanir áður en ný líkön eru gefin út. Fyrirtæki sem byggja eigin lausnir á líkönum þurfa líka að prófa sína uppsetningu, því veikleikar geta legið í tengingum, gögnum og heimildum erindreka.