Matspróf, á ensku evals, eru endurtekin próf á gervigreindarlausn: safn dæma með þekktum réttum svörum eða viðmiðum sem svör eru metin eftir, handvirkt eða með öðru líkani. Þau svara spurningum eins og: Verður lausnin betri eða verri ef fyrirmælum er breytt? Ber nýtt líkan af hinu fyrra?
Án matsprófa byggir ákvörðun um að taka lausn í notkun á tilfinningu. Dæmin þurfa að líkjast raunverulegri notkun og vera uppfærð þegar notkunin breytist.