Líkanakort

e. model card

Einnig kallað: model card

Skjal sem fylgir líkani og lýsir til hvers það er ætlað, hvernig það var þjálfað og prófað og hvar takmörk þess liggja.

Líkanakort er stöðluð lýsing á líkani sem framleiðandi gefur út. Þar kemur yfirleitt fram til hvaða notkunar líkanið er ætlað og til hvers ekki, hvers konar gögn voru notuð í þjálfun, niðurstöður prófana, þekktar takmarkanir og hlutdrægni og hvaða öryggisprófanir voru gerðar.

Líkanakort hjálpa þeim sem velja líkan að meta hvort það henti verkinu. Framleiðandinn skrifar þau sjálfur, svo gott er að lesa þau með gagnrýnum augum og prófa líkanið á eigin verkefnum.

Dæmi úr starfi

Innkaupastjóri sveitarfélags les líkanakort áður en nýtt verkfæri er keypt og athugar hvað þar segir um íslensku, þjálfunargögn og þekktar takmarkanir.

Tengd hugtök

Öll hugtök