Grunnlíkan er stórt líkan sem er þjálfað á gríðarlegu magni fjölbreyttra gagna, t.d. texta, kóða og mynda, án þess að vera sniðið að einu verkefni. Það má síðan nota beint með fyrirmælum eða aðlaga með fínstillingu. Mállíkönin sem liggja að baki ChatGPT, Claude og Gemini eru dæmi um grunnlíkön.
Þar sem mörg fyrirtæki byggja á sömu fáu grunnlíkönunum erfast styrkleikar þeirra, gallar og hlutdrægni í allar lausnir sem á þeim byggja.