Mállíkan

e. large language model

Einnig kallað: LLM, large language model, stórt mállíkan, mállíkön, language model

Líkan þjálfað á miklu magni texta sem býr til texta með því að spá fyrir um næsta tóka. Á því byggja ChatGPT, Claude og Gemini.

Mállíkan er gervigreindarlíkan sem hefur verið þjálfað á gríðarlegu magni texta og lært mynstur málsins. Það býr til svör með því að spá fyrir um líklegasta næsta tóka, aftur og aftur, þar til svarið er tilbúið. Af því leiðir að það getur samið, þýtt, dregið saman og svarað spurningum, en líka að það veit ekki hvort það fer með rétt mál.

Stór mállíkön, á ensku large language models eða LLM, eru grunnur spjallmenna á borð við ChatGPT, Claude og Gemini. Þau þekkja aðeins það sem var í þjálfunargögnunum nema þeim sé gefinn aðgangur að frekari upplýsingum, til dæmis með vefleit eða skjölum.

Dæmi úr starfi

Fulltrúi hjá bæjarfélagi notar mállíkan til að einfalda flókinn lagatexta og ber niðurstöðuna saman við frumtextann áður en hún er send íbúum.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök