Uppspuni er það þegar mállíkan býr til efni sem er rangt, ónákvæmt eða með öllu tilbúið, en framsett af fullu öryggi. Dæmi eru ranghermdar staðreyndir, tilbúnar tilvitnanir og heimildir sem eru ekki til. Líkanið velur orð eftir líkindum, ekki eftir því hvort þau eru sönn, og það getur því fyllt í eyður með trúverðugum texta.
Hægt er að draga úr uppspuna með heimildastoð og með því að biðja líkanið að viðurkenna þegar það veit ekki svarið, en ekki útrýma honum. Því þarf að athuga staðreyndir, tölur og vísanir áður en þeim er treyst.
Í ensku er talað um hallucination. Orðið ofskynjun er einnig notað á íslensku um fyrirbærið, en það er jafnframt hugtak úr læknisfræði og sálfræði.