Þekkingarmörk

e. knowledge cutoff

Einnig kallað: knowledge cutoff

Dagsetningin sem þjálfunargögn líkans ná til. Það veit ekkert um atburði eftir hana nema það fái aðgang að vef eða skjölum.

Þekkingarmörk eru sá tími sem þjálfunargögn líkans ná til. Líkanið hefur enga innbyggða vitneskju um það sem gerðist síðar, til dæmis nýjar reglur, verð eða fréttir. Það getur þó svarað eins og það viti, og þá er hætta á rangri eða úreltri niðurstöðu.

Hægt er að brúa bilið með vefleit eða með því að láta líkanið fá skjöl, en þá þarf að athuga hvaðan upplýsingarnar koma.

Dæmi úr starfi

Starfsmaður sem spyr um gildandi reglugerð athugar hvort verkfærið hafi notað vefleit og staðfestir ártal og gildi í opinberri heimild.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök