Heimildastoð

e. grounding

Einnig kallað: grounding

Að byggja svar gervigreindar á tilteknum heimildum, svo hægt sé að rekja það og staðfesta.

Heimildastoð er það að láta líkan byggja svar sitt á tilgreindum heimildum í stað þess að treysta aðeins á þjálfunargögn sín. Heimildirnar geta verið skjöl sem notandi gefur, niðurstöður vefleitar eða gagnagrunnur. Gott kerfi sýnir svo hvaða heimild liggur að baki hverri fullyrðingu.

Heimildastoð eykur áreiðanleika en tryggir hann ekki. Notandinn þarf að opna heimildina og athuga að hún segi í raun það sem svarið heldur fram.

Dæmi úr starfi

Blaðamaður lætur líkan svara eingöngu út frá þremur viðhengdum skýrslum og krefst þess að hver málsgrein vísi í blaðsíðutal.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök