Staðreyndaskoðun er að bera fullyrðingar saman við traustar heimildir áður en þær eru notaðar. Mállíkön geta sett fram rangar upplýsingar af fullu öryggi, þar á meðal tölur, dagsetningar, nöfn og tilvísanir sem eru uppspuni.
Við staðreyndaskoðun er hver fullyrðing sem skiptir máli rakin til upprunans, til dæmis laga, opinberra gagna eða frumheimildar. Tilvísanir eru opnaðar og lesnar, ekki aðeins athugað hvort þær séu til. Vefleit í verkfærinu dregur úr hættunni en kemur ekki í stað skoðunar.