Tóki

e. token

Einnig kallað: token, tókar, tóken, bútur, bútar, bútum

Lítil eining texta, oft orðhluti, sem mállíkan les og skrifar. Kostnaður og lengdarmörk eru mæld í tókum.

Mállíkön vinna ekki með heil orð heldur með tókum, sem geta verið heil orð, orðhlutar, einstakir stafir eða greinarmerki. Íslenskt orð skiptist oft í fleiri tóka en enskt orð, því íslenska er sjaldgæfari í þjálfunargögnum og orðin lengri og beygð. Því kostar sama textamagn oft meira og tekur meira pláss á íslensku.

Tókar skipta máli því samhengisglugginn, sem segir hve mikið líkanið getur haft í huga í einu, er mældur í tókum, og margar þjónustur rukka eftir fjölda tóka.

Dæmi úr starfi

Starfsmaður sem ætlar að líma inn langa skýrslu athugar hvort hún komist fyrir í samhengisglugganum og skiptir henni í hluta ef þörf krefur.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök