Spjallmenni

e. chatbot

Einnig kallað: chatbot, chatbots, spjallbot

Forrit sem ræðir við þig í texta eða tali. Nútíma spjallmenni byggja yfirleitt á mállíkani.

Spjallmenni er forrit sem tekur við skilaboðum frá notanda og svarar þeim í samtali. Eldri spjallmenni fylgdu föstum reglum og völdu úr tilbúnum svörum. Þau sem eru algeng nú byggja á mállíkönum og geta svarað frjálslega, til dæmis ChatGPT, Claude, Gemini og Copilot.

Spjallmenni ræður ekki við allt sem erindreki gerir, því það svarar yfirleitt aðeins og framkvæmir ekki aðgerðir í öðrum kerfum nema því sé gefinn aðgangur.

Dæmi úr starfi

Vefverslun setur spjallmenni á vefinn sem svarar spurningum um afhendingu og vísar flóknari málum til starfsmanns.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök