Erindreki

e. agent

Einnig kallað: agent, agents, AI agent, erindrekar, erindreka, umboðsmaður

Gervigreindarkerfi sem vinnur verk í mörgum skrefum fyrir þig: ákveður næsta skref, notar verkfæri og heldur áfram þar til verkinu er lokið.

Erindreki er gervigreindarkerfi sem fær markmið og vinnur að því sjálfstætt í mörgum skrefum, öfugt við spjallmenni sem svarar einni spurningu í einu. Hann getur leitað, lesið og breytt skrám, kallað á önnur kerfi og metið eigin niðurstöður til að ákveða hvað er gert næst. Að baki er yfirleitt mállíkan sem er tengt við verkfæri.

Þar sem erindreki getur framkvæmt aðgerðir en ekki bara svarað þarf að afmarka hvað hann hefur aðgang að og hvaða aðgerðir krefjast samþykkis manneskju.

Dæmi úr starfi

Forritari felur erindreka að laga villu: hann les kóðann, keyrir próf, breytir skrám og leggur fram breytingatillögu sem forritarinn fer yfir áður en hún er samþykkt.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök