Verkfæranotkun

e. tool use

Einnig kallað: tool use, function calling, tool calls

Geta líkans til að kalla á verkfæri, svo sem leit, reiknivél eða tengingu við kerfi, og nota niðurstöðuna í svari.

Í verkfæranotkun getur líkan beðið um að tiltekið verkfæri sé keyrt, til dæmis vefleit, útreikningur eða fyrirspurn í gagnagrunn. Forritið sem líkanið er í keyrir verkfærið og skilar niðurstöðunni, og líkanið heldur áfram með hana. Þannig getur það notað upplýsingar og gert hluti sem það getur ekki gert eitt og sér.

Verkfæranotkun er grunnur erindreka. Hver aðgangur sem verkfæri fá eykur áhættuna ef eitthvað fer úrskeiðis, svo gefa á þeim aðeins þær heimildir sem þarf.

Dæmi úr starfi

Bókhaldsforrit leyfir líkani að kalla á verkfæri sem flettir upp reikningi, og líkanið útskýrir síðan niðurstöðuna fyrir notanda.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök