Tenging er uppsett leið sem gerir gervigreindarverkfæri kleift að lesa úr öðru kerfi eða vinna í því, t.d. tölvupósti, dagatali, skjalasafni eða verkbeiðnakerfi. Margar tengingar byggja á MCP eða forritaskilum kerfisins sem tengt er við.
Tenging fær þær heimildir sem gefnar eru við uppsetningu. Gott er að byrja á lesaðgangi, gefa aðeins aðgang að því sem verkið krefst og athuga hvort vinnustaðurinn hefur samþykkt tenginguna, því gögn úr tengda kerfinu berast verkfærinu.