Sjálfvirknivæðing verkferla er að láta kerfi sjá um hluta eða öll skref í verkferli sem fólk hefur unnið. Dæmigerð skref eru að sækja gögn, færa þau á milli kerfa, flokka erindi, búa til drög og senda tilkynningar. Gervigreind gerir mögulegt að sjálfvirknivæða skref sem áður kröfðust lesturs eða skrifa, t.d. að draga upplýsingar úr tölvupósti.
Gott er að byrja á afmörkuðu ferli, ákveða hvar manneskja samþykkir áður en eitthvað fer út og mæla hvort ferlið skilar réttum niðurstöðum. Ferli sem er óljóst eða illa skilgreint verður ekki betra við sjálfvirknivæðingu.