Samþykktarpunktur

e. checkpoint

Einnig kallað: checkpoint, samþykktarpunktar, samþykktarpunkta

Staður í verki þar sem verkfærið stoppar og bíður eftir samþykki manneskju áður en það heldur áfram.

Samþykktarpunktur er fyrirfram ákveðinn staður í verki þar sem gervigreindarverkfæri eða erindreki stoppar, sýnir hvað hann hefur gert eða ætlar að gera og bíður eftir samþykki. Algengir staðir eru eftir að áætlun liggur fyrir, eftir hvern áfanga, áður en eitthvað er sent út og áður en óafturkræf aðgerð er framkvæmd.

Samþykktarpunktar eru skrifaðir inn í verklýsinguna eða stilltir í verkfærinu. Þeir virka aðeins ef sá sem samþykkir les það sem er lagt fram. Í sumum verkfærum merkir enska orðið checkpoint líka vistaðan stað sem hægt er að snúa aftur til, og það er annað hugtak.

Dæmi úr starfi

Sviðsstjóri felur erindreka að undirbúa bréf til 200 viðskiptavina. Samþykktarpunktar eru eftir áætlunina, eftir fyrstu þrjú bréfin og áður en nokkuð er sent.

Tengd hugtök

Ekkert námsefni er tengt þessu hugtaki enn.

Öll hugtök