Erindrekasafn er staður innan gervigreindarverkfæris þar sem erindrekar eru birtir og hægt er að finna þá, t.d. Agent Store í Microsoft 365 Copilot. Þar geta verið erindrekar frá framleiðanda verkfærisins, frá öðrum fyrirtækjum og frá starfsfólki stofnunarinnar sjálfrar.
Erindreki úr safni getur fengið aðgang að gögnum notandans, t.d. skjölum eða tölvupósti. Því skiptir máli hver smíðaði hann, hvaða gögn hann notar og hvort stofnunin hefur samþykkt hann. Margar stofnanir stýra því hverjir mega birta erindreka í safninu.