Fjölþátta líkan ræður við fleiri en eina tegund gagna í sömu samskiptum. Þú getur til dæmis sent mynd af töflu og beðið um samantekt í texta, eða talað við líkanið og fengið svar sem tal. Fyrstu mállíkön unnu aðeins með texta.
Myndir og hljóð eru líka gögn, svo sömu varúðarreglur gilda: ekki senda inn persónugreinanlegar myndir eða upptökur nema heimild sé til þess.