Líkan í gervigreind er afurð þjálfunar: stærðfræðileg uppbygging, oft tauganet, með færibreytum sem hafa verið stilltar út frá gögnum. Þegar líkanið fær inntak, t.d. texta eða mynd, reiknar það úttak, t.d. svar, flokk eða spá.
Verkfæri eins og ChatGPT, Claude eða Copilot eru ekki líkanið sjálft heldur forrit sem nota eitt eða fleiri líkön, ásamt viðmóti, kerfisfyrirmælum og tengingum. Sama verkfæri getur því skipt um líkan og hegðað sér öðruvísi á eftir.