Regluleg segð er mynstur, skrifað á sérstöku táknmáli, sem lýsir hópi textastrengja. Hún er notuð til að leita í texta, athuga hvort inntak sé á réttu sniði og skipta út hlutum texta. Mynstrið ^\d{6}-?\d{4}$ passar t.d. við tíu tölustafi með eða án bandstriks á eftir þeim sjötta, eins og kennitala er rituð.
Reglulegar segðir eru knappar og erfiðar aflestrar, og því er algengt að láta gervigreind skrifa þær. Þá þarf að prófa segðina bæði á dæmum sem eiga að passa og dæmum sem eiga ekki að passa, t.d. íslenskum stöfum og tómum streng.