Gagnanám, á ensku text and data mining, er sjálfvirk greining á texta og öðrum gögnum á stafrænu formi til að draga fram mynstur, tengsl og upplýsingar. Þjálfun mállíkana byggir að miklu leyti á gagnanámi á efni af vefnum.
Gagnanám snertir höfundarrétt, því afrita þarf efnið til að greina það. Í ESB eru undantekningar frá höfundarrétti fyrir gagnanám, en rétthafar geta í mörgum tilvikum bannað það með skýrum fyrirvara. Reglurnar eru ólíkar milli landa og staðan er enn í mótun.