Myndlýsing er texti sem fylgir mynd á vef eða í skjali og segir hvað myndin sýnir. Skjálesarar lesa hana upphátt fyrir blinda og sjónskerta, og hún birtist ef myndin hleðst ekki. Í HTML er hún sett í alt-eigindi myndarinnar.
Góð myndlýsing er stutt og segir það sem skiptir máli í samhenginu, ekki meira. Gervigreind getur skrifað drög að myndlýsingum, en hún getur líka bætt við smáatriðum sem eru ekki á myndinni. Því þarf að bera hverja lýsingu saman við myndina sjálfa.