Prufuumhverfi, á ensku playground, er vefviðmót frá framleiðanda líkans þar sem hægt er að senda líkaninu fyrirmæli og stilla t.d. kerfisfyrirmæli, hitastig og hámarkslengd svars. Það er notað til að prófa fyrirmæli og bera saman líkön áður en þau eru tengd við forrit í gegnum forritaskil.
Prufuumhverfi er ætlað til prófana. Notkunin fer yfirleitt fram á aðgangi hjá framleiðandanum og skilmálar um meðferð gagna geta verið aðrir en í samþykktu vinnuverkfæri, svo raunveruleg gögn með persónuupplýsingum eiga ekki heima þar nema það hafi verið samþykkt.